Aðalfundur félags tölvunarfræðinga var haldinn í sal Verkfræðingafélagsins þann 23. Maí 2019 og var þar kosin ný stjórn.
Hana skipa:
- Hrafn Þorvaldsson, formaður
- Haukur Ö. Harðarson, gjaldkeri
- Birna Guðmundsdóttir, ritari
- Einar Indriðason, formaður kjaranefndar
- Gunnlaugur Bollason, menntari
- Björgvin Áskelsson, varamaður
- Monica Roismann, varamaður
Niðurstöður kjarakönnunar fyrir árið 2019 voru kynntar á aðalfundi líkt og venja er og má nú nálgast þær í gegnum innrivef félagsins, bæði sem vefútgáfa og sem prentvænt skjal (PDF).