Hinn árlegi aðalfundur félagsins verður haldinn þriðjudaginn 26. maí kl. 17:00 í húsakynnum Verkfræðingafélags Íslands við Engjateig 9, 105 Reykjavík.

Dagskrá verður samkvæmt lögum félagsins:

  1. Skýrsla um störf félagsins á liðnu starfsári
  2. Reikningsskil
  3. Lagabreytingar (sjá neðar)
  4. Kosning stjórnar og varamanna (við erum að leita að fleiri þátttakendum í stjórn og áhugasamir mega gjarnan hafa samband)
  5. Kosning skoðunarmanna
  6. Ákvörðun félagsgjalda
  7. Önnur mál (kosning, sjá neðar)

Lög félagsins er að finna á vef félagsins (sjá hér).

Að lokinni hefðbundinni dagskrá verður farið yfir niðurstöður úr nýjustu kjarakönnun félagsins. Hún verður svo gerð aðgengileg félögum gegnum vef félagsins síðar. Boðið verður upp á léttar veitingar og biðjum við félaga sem ætla að mæta á staðinn vinsamlegast um að melda sig svo áætla megi þær. Hægt er að melda sig í viðburðinn á Facebook í hópi félagsins eða tilkynna komu sína með því að senda okkur póst á ft@ft.is.

Engar lagabreytingartillögur hafa borist að svo stöddu.

Með kveðju,

Stjórn FT

Categories: Aðalfundur