Aðalfundur Félags Tölvunarfræðinga verður haldinn fimmtudaginn 31. maí næstkomandi klukkan 17:00.
Fundurinn verður haldinn í sal Verkfræðingafélags Íslands, Engjateigi 9, 105 Reykjavík.
Dagskrá verður samkvæmt lögum félagsins:
1. Skýrsla um störf félagsins á liðnu starfsári
2. Reikningsskil
3. Lagabreytingar
4. Kosning stjórnar og varamanna
5. Kosning skoðunarmanna
6. Ákvörðun félagsgjalda
7. Önnur mál
Lög félagsins er að finna á vef FT: https://ft.is/
Að venju verður farið yfir nýjustu kjarakönnun félagsins eftir fund. Kjarakönnunin er í lokavinnslu þessa daganna. Breyting verður á þetta árið, en kjarakönnun verður gerð aðgengileg félögum inná nýjum innrivef félagsins að aðalfundi loknum.
Að venju verður boðið upp á léttar veitingar. Vinsamlega meldið mætingu til ft@ft.is svo áætla megi veitingar.