Aðalfundur Félags tölvunarfræðinga verður haldinn miðvikudaginn 25. maí klukkan 17:00.
Fundurinn verður haldinn í sal Verkfræðingafélags Íslands, Engjateigi 9, 105 Reykjavík.

Dagskrá verður samkvæmt lögum félagsins:

  1. Skýrsla um störf félagsins á liðnu starfsári
  2. Reikningsskil
  3. Lagabreytingar
  4. Kosning stjórnar og varamanna
  5. Kosning skoðunarmanna
  6. Ákvörðun félagsgjalda
  7. Önnur mál
Lög félagsins er að finna á vef FT: https://ft.is/um-felag-tolvunarfraedinga/log/
Farið verður yfir nýjustu kjarakönnun félagsins strax eftir liðinn “Önnur mál”.

Að venju verður boðið upp á léttar veitingar.