Ný mánaðarleg könnun: gervigreind og störf
Frá og með nóvember spyrjum við félaga sex stuttra spurninga í hverjum mánuði um gervigreind og atvinnuhorfur. Þau sem svara fá aðgang að niðurstöðunum.

Gervigreind er að breyta störfum tölvunarfræðinga hratt, en lítið er vitað um hvernig félagsfólk upplifir breytingarnar. Til að fylgjast með þróuninni hefur FT hafið mánaðarlega könnun meðal félaga.
Könnunin tekur um eina mínútu. Spurt er hversu mikið þú notar gervigreind í vinnu, hvaða áhrif hún hefur á afköst, hvort þú hafir áhyggjur af atvinnuhorfum þínum, hversu vel þú treystir þér til að aðlagast og hvernig þú telur að störfum tölvunarfræðinga á Íslandi muni fjölga eða fækka. Spurningarnar eru þær sömu í hverjum mánuði, svo hægt sé að sjá hvernig viðhorfin breytast.
Þegar þú hefur svarað opnast niðurstöðurnar: dreifing svara í mánuðinum, þróunin frá fyrri mánuðum og þín eigin svör til samanburðar. Þú getur líka skoðað niðurstöður eftir starfsreynslu og sótt gröfin sem myndir.
Svörin eru vistuð undir dulkóðuðu auðkenni, ekki undir nafni eða kennitölu, svo starfsfólk sem vinnur með gögnin sér ekki hver svaraði hverju. Niðurstöður eru aðeins birtar þegar að minnsta kosti tíu hafa svarað.
Fyrsta könnunin opnar 1. nóvember. Skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum og taktu þátt á ft.is/konnun.



