Kynbundinn launamunur meðal tölvunarfræðinga mælist 6,1%
Ný greining á svörum úr launakönnun sýnir 6,1% leiðréttan launamun, konum í óhag. Styttri starfsaldur kvenna skýrir hluta af muninum en ekki allan.

Félag tölvunarfræðinga hefur greint svör úr launakönnun með tilliti til kynbundins launamunar. Greiningin nær til 477 einstaklinga í fullu starfi, 379 karla og 98 kvenna, og byggir á föstum mánaðarlaunum í febrúar.
Föst laun kvenna eru að jafnaði 9,8% lægri en karla. Þegar leiðrétt er fyrir starfsaldri, menntun, starfsvettvangi, starfssviði og mannaforráðum stendur eftir 6,1% munur, konum í óhag (95% öryggisbil 2,8–9,3%). Það samsvarar um 73 þúsund krónum á mánuði miðað við meðallaun kvenna í úrtakinu.
Um 39% af óleiðrétta muninum skýrast af styttri starfsaldri kvenna: 28% kvenna eru með innan við fimm ára starfsaldur en 13% karla. Tegund starfs skýrir nánast ekkert, og niðurstaðan breytist lítið þótt aðferðinni sé breytt.
Óútskýrður munur er ekki það sama og mismunun. Í gögnin vantar meðal annars aldur, vinnutíma, vinnustað og ábyrgðarstig, og fólk í hlutastarfi er ekki með í greiningunni. Gögnin eru ópersónugreinanleg.
Skýrsluna má lesa í heild hér: Kynbundinn launamunur meðal tölvunarfræðinga (PDF)
Fleiri fréttir
Sjá allar fréttir
Ný mánaðarleg könnun: gervigreind og störf
Frá og með nóvember spyrjum við félaga fimm stuttra spurninga í hverjum mánuði um gervigreind og atvinnuhorfur. Þau sem svara fá aðgang að niðurstöðunum.

Nýkjörin stjórn
Á aðalfundi félags tölvunarfræðinga þann, 26. maí 2026 kusu félagsmenn sér nýja stjórn

Aðalfundur FT 2026
Hinn árlegi aðalfundur félagsins verður haldinn þriðjudaginn 26. maí kl. 17:00 í húsakynnum Verkfræðingafélags Íslands við Engjateig 9, 105 Reykjavík.

